6.10.2008 | 12:21
Tillaga að aðgerðapakka
Ríkisstjórnin þarf að tryggja trú á íslensku krónuna og stöðugleika hennar. Ennfremur þarf að lágmarka skaða almennings og atvinnulífsins. Til þess þarf aðgerðarpakka sem innifelur meðal annars að:
1. Skipa út seðlabankaráði og fá reynda hagfræðinga og bankamenn í ráðið þar á meðal þekktan erlendan bankamann. Þetta er frumskilyrði til þess að skapa alþjóðlaga tiltrú á íslensku krónunni og bankakerfi.
2. Efla gjaldeyrissjóðinn það mikið að hægt verði að leysa út öll jöklabréf og skapa trúverðugleika um fast gengi. Til þess þarf a.m.k. 500 milljarða til viðbótar við núverandi gjaldeyrissjóð. Hluti þess, 200 milljarðar, kæmi frá lífeyrissjóðunum.
3. Falla frá verðbólgumarkmiðum seðlabankans og festa gengi krónunnar þannig að gengisvísitalan verði á bilinu 160 til 200. Það mætti gera með því að festa gengið við Evruna og dönsku krónuna þannig að Evran samsvari t.d. 125 krónum íslenskum. Þetta tryggir stöðugt verðlag á Íslandi til lengri tíma þar sem mestur hluti innflutnings landsins er bundinn þessum gjaldmiðum.
4. Lækka stýrivexti seðlabankans niður í 10% og dráttarvexti niður í 17% í fyrst skrefi. Þegar hægir á verðbólgunni og nýtt fastgengi festir sig í sessi má lækka vextina meira. Lækkun vaxta og dráttarvaxta er mjög mikilvæg til þess að tryggja hag skuldugra heimila og fyrirtækja og forðast fjöldagjaldþrot sem bitnar á bönkunum og síðan allri þjóðinni.
5. Sækja um inngöngu í Evrópusambandið með það að markmiði að taka upp evruna ein fljótt og hægt er miðað við þær kröfur sem þarf að uppfylla um verðbólgu og stöðu ríkissjóðs til þess að fá aðild að myntbandalaginu.
6. Draga tímabundið úr umsvifum bankanna meðan við erum ekki búin að taka upp evru og óróleiki er jafn mikill á alþjóðlegum mörkuðum og nú er.
7. Setja reglur um starfsemi bankanna þannig að stjórnendur þeirra geti ekki skammtað sér óhólfslaun hvort sem er við ráðningu, á stafstíma eða við starfslok. Hvatakerfi bankanna má ekki hvetja til útþenslu þeirra og aukinnar áhættu í útlánum.
Ekki þörf á aðgerðapakka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 13:16 | Facebook
Um bloggið
Gunnlaugur H Jónsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.